Hjálmar Ingi...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Áttu barn/börn?

Leit

http://www.123.is/a_e_h

19. febrúar 2007 klukkan 01:27
Er búin að flytja mig yfir á 123.is og við familían erum þar saman, er semsagt búin að sameina síður okkar Hjálmars Inga og bæta Agli inn í. Var mjög ánægð hér á bloggar.is fyrir utan það þegar síðan vildi ekki opnast né heldur aðrar síður á bloggar.is.
Kíkið á nýju síðuna með því að klikka hér.
Ásta Sólveig Hjálmars.
Engin athugasemd

Hvíl í friđi elsku amma mín

11. febrúar 2007 klukkan 01:35
Hún Laufey amma mín er látin. Lést 6.febrúar sl. Búin að vera mikið veik, orðin þreytt og sjálfsagt hvíldinni fegin. Fær nú að fara heim í Bjarnarhöfn og hvíla við hlið afa.

Hún hafði húmorinn alltaf í lagi og fannst fátt skemmtilegra en að vera í kringum fólk og hafa gaman. Hún átti stóran hóp afkomenda enda eignaðist hún 10 börn. Hún fylgdist alltaf vel með og það var alltaf jafnmikil gleði þegar nýr afkomandi kom í heiminn og allir atburðir í lífi hvers og eins mikið gleðiefni. Þegar við komum með Hjálmar Inga í heimsókn vildi hún alltaf fá hann í fangið og spjalla svolítið. Hún sagði það þegar hún sá hann fyrst að hann yrði listamaður svo það verður gaman að sjá hvernig rætist úr því.

Læt hér fylgja nokkrar myndir af henni.
amma á 89 ára afmælisdeginum sínum í sumar
amma að segja sögu
Amma og HI að ræðaHI og amma

Amma og HI
Ásta Sólveig Hjálmars.
7 athugasemdir

Vika í Rvk :)

03. febrúar 2007 klukkan 16:43

Við Hjálmar Ingi erum búin að vera í Rvk í tæpa viku en Egill var helgina. Fórum á föstudagsmorguninn og á leiðinni komum við að slysi. Maðurinn hafði kastast út úr bílnum í veltunum en hann hafði verið að taka fram úr og það var svakaleg ísing á veginum. Við hlúðum að manninum og ég sá um andlegu hliðina, þ.e. ég talaði við hann og hélt honum við efnið. Þegar við komum var hann rotaður og maðurinn sem horfði á slysið sagði við okkur að hann væri dáinn eða að deyja. Ég er enn jafnhissa á því hvað ég stóð mig vel. Fékk fyrst algjört sjokk og gat varla andað og hélt að það væri að líða yfir mig. En svo komst ég yfir þetta og hlúði að manninum í þessar 20 mín. sem liðu þar til sjúkrabíllinn kom frá Borgarnesi. Hann var svo fluttur með þyrlu frá Borgarnesi til Rvk. Í fréttum kom að hann hafi ekki verið í lífshættu og ekki í öndunarvél. Svo þetta fór allt saman betur en á horfðist í fyrstu. Hann var mér þó efst í huga nokkra daga á eftir og ég hugsaði varla um annað. Ég fékk svo þær upplýsingar á mánudaginn hjá spítalanum að hann væri útskrifaður. Brosandi Eftir það var ég róleg.

Við vorum síðan að stússast heilmikið um helgina. Fórum í Ikea og keyptum skrifborð svo ég geti nú verið dugleg að læra en ég er að taka 8 einingar í fjarnámi í FÁ, íslensku 403, ensku 503 og upplýsingatækni 102. Kíkti inn á WebCT í gærkvöldi og fékk sjokk...ég þarf að vera ansi dugleg í lærdómnum...komin slatta eftir á! Öskrandi 
Svo keyptum við prentara, rafmagnstannbursta og ýmislegt svona sem vantaði.

Á föstudagskvöldið vorum við með Söndru Björk og Signýju Maríu og við kíktum á handboltaleikina hjá Söndru. Hún er ekkert smá öflug í markinu!!! Keppnisskapið sko í lagi! Glottandi Við leigðum svo mynd og keyptum nammi og svona. Saklaus Um hádegið á laugardaginn drifum við okkur svo í afmæli til Bryndísar Hrannar. Hún er orðin 13 ára!!! Til hamingju með afmælið Bryndís!!! Svalur Hjálmar Ingi fór svo með Sigríði og co. en hún bauðst til að passa og við fengum íbúðina hennar og alles. Brosandi Við ætluðum að fara voða rómó út að borða en það varð ekkert úr því og við enduðum á Subway því við vorum að drífa okkur til Róberts og Steffi í partý. Ég fékk Oddnýju og Ásu Birnu með í partý...voru báðar alveg óðar í að fá að djamma með mér...híhí...enna er maður svo sjaldan í bænum til að djamma, hef ekki gert það svkalega lengi!!! Fórum svo niður í bæ og það var svaka stuð.Brosandi

Á sunnudaginn tæmdum við geymsluna í Möðrufellinu og um kvöldið dreif Egill sig svo heim en við Hjálmar Ingi vorum eftir hjá mömmu og pabba.


Ég fór til tannlæknis og það var rifinn úr mér eitt stykki jaxl sem er búið að standa til í að verða ár. Hann vildi svo fá mig aftur og taka hinn líka en ég leyfði honum það ekki...þarf bara að koma aftur innan hálfs árs í það svo plönin okkar gangi upp. Svo gerði hann við eina tönn.

Hjálmar Ingi fór til ofnæmislæknis og var rosalega duglegur í ofnæmisprófinu. Það var gert á hendinni á honum og honum fannst allra verst að þurfa að bíða í þessar 10 mínútur meðan prófið var gert. Ég hélt honum rólegum með því að syngja og svona. En í ljós kom að hann er ekki með ofnæmi heldur bara óþol. Hlæjandi Sem er mikið betra því þá má hann fá súrmjólk og jógúrt og gouda ost. Brosandi Það er nefninlega búið að brjóta niður laktósann í því en hann ræður ekki við það sjálfur. Það eru enn jafnmiklar líkur á því að það eldist af honum en við megum ekki vera of bjartsýn samt.

Við fórum svo í heimsókn til Hönnu Láru og Hrafntinnu Máneyjar og við pöntuðum pizzu. Hjálmar Ingi og Hrafntinna léku sér mikið saman og skemmtu sér mjög vel og okkur Hönnu Láru fannst rosa gaman að sjá hvað þau voru góð saman. Ótrúlegt hvað Hjálmar Ingi er orðinn fullorðinn!!! hehe...

Mamma kom svo með okkur í bæinn því amma er mikið veik.Fýldur Mamma er svo að fara út svo hún vildi vera hjá mömmu sinni eins og hún gæti áður en hún færi. Pabbi kemur svo að sækja hana í dag.

Hjálmar Ingi var svo ægilega kvefaður í nótt og fékk að sofa upp í hjá okkur. Ég dreif mig svo á fætur með honum og leyfði Agli að sofa út. Svo kom Hiddi bróðir mömmu og fékk hjá okkur morgunmat og keyrði mömmu svo á spítalann til ömmu en hann var hjá henni í nótt.

Við förum svo á þorrablót í kvöld...namm namm...hákarl, harðfiskur og sviðasulta...mmm...

Ásta Sólveig Hjálmars.
4 athugasemdir

Allt ađ gerast bara!

21. janúar 2007 klukkan 05:00

Ég er alltof ódugleg við að skrifa hérna! En þið eruð líka ekki að standa ykkur í athugasemdunum! Óákveðinn

Ég sit hérna í Lazy boy að drepast í hálsinum! Átti að vera að vinna í kvöld en klukkan 2 þá var ég að teygja mig...svona svakalega að það small eitthvað í hálsinum á mér! Eftir það gat ég ekki hreyft á mér hausinn. Fýldur Ég hélt fyrst að ég hlyti að vera með klemmda taug og tók tvær íbúfen og reyndi að liðka mig. Hringdi í Læknavaktina í Rvk og hjúkkan sem ég talaði við sagði mér að ég yrði bara að taka íbúfen fast og að þetta tæki bara tíma. Svo talaði ég við konu úr vinnunni sem er yfir núna og hún sagði mér að hringja í 112 og fá samband við vakthafandi lækni hér í Stykkis svo hann gæti greint þetta og ef hann vildi jafnvel kíkja á mig. Ég gerði það og hann sagði að þetta væri líklega ekki klemmd taug heldur eitthvað í hálsliðnum. Hann sagðist ætla að hringja upp á deild og þar fengi ég sterkari verkjalyf og vöðvaslakandi. Ég lagði mig eftir að hafa fengið þessi lyf og svaf í 2 tíma. Ég er enn að kálast! Fýldur 

Bóndadagurinn var í gær og ég hefði nú ekki fattað það ef ég hefði ekki farið inn til eins manns í vinnunni í fyrrakvöld þar sem hann var búinn að rífa af dagatalinu svo morgundagurinn blasti við mér og þar stóð skýrt og greinilega: "Bóndadagur". Ég gat því varla sofnað um nóttina því ég var alveg tóm með hvað ég ætti að gera fyrir Egilinn minn...En þetta heppnaðist bara vel...fór í Sjávarborg (alt muligt búð hér í bæ) og keypti bók sem heitir "Yndislega ástin mín"´. Ég rétt gluggaði í hana og sá að þetta passaði allt voða vel við ástina mína. Svo keypti ég bolla sem á voða vel við hann líka en ætla ekkert að hafa það eftir hér...hehe...

Árshátíð bæjarstarfsfólks var svo fyrir tveimur vikum og það var rosa fjör...skemmti mér konunglega! Við vorum bara 4 sem mættum af Dvaló!!!! Ég ákvað að smakka hreindýrapatéið sem var í forrétt og það var voða gott en sem betur fer fór ég varlega í þetta því ég fékk HAGL! jebb....ef ég hefði nú bitið í það hefði farið í verra! Ég lét kokkinn nú bara fá þetta aftur og sagði honum að hann gæti þá bara notað það aftur! Ullandi

Við héldum upp á afmælið hans Hjálmars Inga síðustu helgi og það heppnaðist bara voða vel Brosandi Það voru 25 manns sem komu og samt komust ekki nærri því allir! Hjálmar Ingi naut sín þvílíkt og fékk sko að smakka alls konar sem hann hafði ekki fengið áður! Kornflekskökur og skúffuköku með bláu glassúri og skreytt með hlaupböngsum (Hjálmar Ingi 1 árs stóð með hlaupböngsum). Það voru 2 brauðréttir og svo brauð með pestó, ostum og sultu og eitthvað. Vorum með Cars þema því Hjálmar Ingi er algjör bílakall. Svo hann var að gera bílahljóðið sitt allan tímann... Ullandi Þægilegt að hafa bara plastglös, -dúk og -diska...bara hægt að henda þessu öllu saman og ekkert ´"raða í uppþvottavélina" rugl!

En héðan er annars ágætt að frétta bara...fer að standa mig betur í blogginu og þá sleppiði við þessar löngu færslur! Glottandi svo verðið þið að vera dugleg í kommentunum líka...bara eitt komment á síðustu færslu og það eru 12 daga síðan ég setta hana inn....suss á ykkur bara!

Ásta Sólveig Hjálmars.
4 athugasemdir

Hjálmar Ingi 1 árs!!!

09. janúar 2007 klukkan 02:34
Jæja...þá er litli strákurinn minn orðinn eins árs!!!

Ég fékk hana Sólveigu mína til að skipta við mig um vakt svo ég yrði ekki að vinna á afmælisdaginn og við fjölskyldan fórum út að borða, var samt voða heimilislegt og vorum bara að spjalla við kokkinn og svona. Hjálmar Ingi fékk kjúkling með hrísgrjónum og smá súrsætri sósu. Það er ekki á matseðlinum en hann Summi á Fimm fiskum útbjó það fyrir hann út af ofnæminu :) Ég átti það líka alveg inni hjá honum því ég fékk hagl í hreindýrapatéinu mínu á árshátíðinni...hehe... Svo fékk Hjálmar Ingi annanashlunk í eftirmat og borðaði 2 pínulitla bita af honum...fannst þetta kalt og skrýtið Ullandi


En hann ákvað að þetta væri dagurinn til að byrja að taka nokkur skref milli hluta og metið hjá honum er 5 skref og gerði hann það náttúrulega í dag. Í gær var metið 3 skref :p Svo ég er ekkert smá stolt.


Ótrúlega skrýtið að hugsa til aðstöðunnar sem maður var í fyrir akkúrat ári síðan og svo hef ég verið í dag þegar klukkan er eitthvað ákveðið, eins og kl. 8, þá hugsaði ég: " vá, fyrir akkúrat ári síðan var ég að byrja að rembast" svo kl.11: "vá, núna var ég fyrir akkúrat ári síðan í keisara og Hjálmar Ingi kom í heiminn!" og kl.2: "vá...fyrir ári síðan sá ég hann í fyrsta skiptið og fékk hann í fangið!". maður er óneitanlega snortinn og það er skrýtið að hugsa út í þetta Ullandi

En þessi færsla er ætluð Hjálmari Inga, segi seinna frá árshátíðinni og heimsókn mömmu og bræðra minna og mörgu fleiru þar sem ég hef ekki verið allt of dugleg að blogga Óákveðinn

Ásta Sólveig Hjálmars.
1 athugasemd

Loksins fćrsla!!!

20. desember 2006 klukkan 20:30

Aldrei hefur liðið svona langt milli færslna! Lítur út fyrir að Hjálmar Ingi sé stórslasaður en þetta var mikið minna en búist var við og hann var búinn að jafna sig 4 dögum seinna.

En við erum flutt, búin að vera í þessari fínu íbúð í að verða mánuð. Hún er 93 fm og Hjálmar Ingi með sérherbergi. Brosandi Stórt baðherbergi, stórt þvottahús og geymsla og þetta er 5 ára gamalt hús svo það er allt nýtt hér.

Núna rétt áðan komumst við að samkomulagi með sölu á íbúðinni og leigjandinn okkar mun kaupa hana. Brosandi Svoleiðis að nú borgum við bara niður skuldir og leggjum svo fyrir. Ætlum að vera áfram í þessari æðislegu íbúð sem við erum í. Værum samt alveg til í að kaupa hana ef hún færi á sölu!

Við erum búin að gera allt fyrir jólin og eigum bara eftir að senda pakka norður á Krók , senda kortin og pakka inn nokkrum gjöfum og þá er barasta allt komið! Hlæjandi Ég er búin að baka 3 sortir og ein er búin! Kurltopparnir kláruðust fljótt! Eigum ennþá til piparkökur og spesíur með súkkulaði.

Jólaplanið okkar er að fara suður til mömmu og pabba á aðfangadag þegar ég er búin að vinna um hádegið og vera fram á þriðja í jólum því þá fer ég að vinna. Það er bara vonandi að við fáum almennilega færð!

Það sem á daga okkar hefur drifið undanfarið:

* Ég er komin með permanent. Voða sæt og fín með liði.
* Fórum suður og eyddum öllum peningunum okkar í jólagjafir og mublur í herbergið hans Hjálmars Inga.
* Hjálmar Ingi er voða mikið að babbla og koma allskonar orð út úr honum. Er meira að segja farinn að herma. Hann segir: Mamma, átta (Ásta), amma, afi, isa (kisa), tsss (líka kisa), dess (kex), namm namm, batti (bolti), hetta (þetta)...man ekki meira í augnablikinu og takið eftir...ég er EKKI að GLEYMA "pabbi" því hann barasta segir það ekki! Hann veit alveg hvað og hver þessi pabbi er...hehe...en hann kallar hann bara líka mömmu...finnst það greinilega ágætt samheiti fyrir okkur. Ullandi 

Æ ég man voða lítið hvað er búið að vera í gangi hjá okkur annað en flutningar og eitthvað. Svo ég segi bara tútilú! Blogga ábyggilega fyrir jólin en ef ekki þá er um að gera að segja líka:

 Gleðileg jól!

Ásta Sólveig Hjálmars.
Almennt | 2 athugasemdir

Lasin og litli kútur slasađur :(

01. nóvember 2006 klukkan 22:46
Það sem gengur ekki á á þessum bæ! Ég er búin að vera lasin síðan á föstudagskvöldið og komst því ekki í vinnuna um helgina og ekki í kvöld heldur. Vona að ég geti unnið á morgun! Er búin að hnerra svo mikið að ég er búin að sprengja æðar í báðum augum! Búin að vera hitalaus en drepast úr beinverkjum og kvefi. Fékk fyrst nefkoksbólgu á laugardaginn og það var að batna á sunnudeginum en þá fékk ég í hálsinn! NæS!

Mamma og pabbi komu í heimsókn á sunnudaginn. Lögðu af stað kl.16:30, fóru til ömmu á spítalann og komu svo hingað og fengu lasagne og keyrðu svo heim. Komu með nagladekk handa okkur Brosandi 

Hjálmar Ingi fór sér aldeilis að voða í gærmorgun Fýldur Hann steypti sér úr RIMLArúminu sínu. Svo ég er búin að kaupa nýtt rúm og mamma fer að sækja það í kvöld og við fáum það svo við fyrsta tækifæri...hugsa að við skreppum bara eftir því um helgina. En ég hringdi á spítalann og athugaði hvort ég gæti fengið að koma með hann og mér var sagt að koma bara með hann snöggvast. Hann er líklega með brákað rifbein þessi litla elska Óákveðinn Beinin eru svo mjúk að þetta ætti að vera fljótt að gróa. Hann háskælir ef hann er tekinn upp með því að taka um brjóstkassann svo nú er hann tekinn upp á mjöðmunum. En það eru framfarir frá því í gær...hann er farinn að skríða. Vældi fyrst en svo lét hann sig hafa það.
Hann er annars farinn að ströggla við það að labba...við keyptum kubbakerru um daginn og hann labbar með hana yfir þetta litla gólf hérna. Hann veit loksins í hverju merking orðanna "mamma" og "pabbi" liggur. Notar það óspart; sérstaklega það fyrra. "Datt" er samt aðalorðið í orðaforðanum hans og orðið er sagt áður en merking þess á sér stað. Hann kann semsagt líka að spá fram í tímann...haha! Hann er kominn með 5 tennur og fleiri eru að reyna að brjóta sér upp...eða niður...eða eitthvað...

En við komumst vonandi sem fyrst úr þessari blessuðu íbúð. Gólfkuldinn hér er svo mikill að Hjálmar Ingi er ískaldur á höndum og fótum eftir að hafa leikið sér á gólfinu. Þegar hann vaknar á morgnana er hann ískaldur þar sem hann sparkar alltaf af sér sænginni en samt höfum við hann kappklæddan! Allir ofnar í botni og gluggar lokaðir. Ísskápurinn er inni í stofu og ég næ til lofts með því að teygja mig. Forstofan er löng og mjó og þar er efri parturinn af vagninum hans Hjálmars Inga svo það er ægilega þröngt. Skóhillan kemst ekki fyrir svo hún er inni í eldhúsi...Langar að komast héðan sem fyrst! Þetta örugglega fín íbúð fyrir barnlaust fólk sem á ekki svona mikið af dóti. Jæja...ég er hætt að kvarta! pöhh...
Ásta Sólveig Hjálmars.
5 athugasemdir

Lítiđ um blogg...

23. október 2006 klukkan 19:11
Jæja...fyrirgefið elskurnar...eitthvað lítið um blogg á þessum bænum núna... Maður er svona að aðlagast nýjum aðstæðum og lítill tími fyrir nokkuð annað en að sinna litla kút og vinna. Erum líka dugleg að kíkja suður og hingað til hef ég notað hvert tækifæri til þess enda er ég að rotna í þessari íbúð sem við erum í gæfi nánast hvað sem er til að komast í almennilegt húsnæði!

En átakið gengur ekkert allt of vel þar sem ég hef nánast engan tíma...gekk vel í fyrstu og ég missti 1,6 kg á fyrstu 2 vikunum en svo var komið að því að breyta hegðun og það ar bara alls ekkert að virka því ég var að flytja á nýjan stað og er barasta ekki með neina vana hér og allar aðstæður eru nýjar. Ég er að kynnast nýju fólki og get því engu breytt. Ég ætti kannski að hringja í Ásu Birnu (eina af "gömlu" vinunum) og láta eins og hálfviti, þ.e. breyta hegðuninni...naaaa...held ekki. Hlífi þér við því Ása mín! Glottandi

En ég ætla að lesa þessa bók aftur þegar rútínan er orðin meiri og ég er búin að aðlagast breyttum aðstæðum...það að byrja að vinna eftir allan þennan tíma er bara meira en að segja það! Mér finnst eins og ég hafi ALDREI sofið í hvert skipti sem ég vakna á morgnana!

Annars er mest lítið að frétta. Fór suður þarsíðustu helgi og fór í innflutningspartý hjá Ásu minni. Það var rosa gaman en ég hefði átt að fara í vatnið um 2 því upp úr því var ég búin að fá mér einum, tveimur eða þremur of mikið!

Við fórum suður á laugardaginn og Hjálmar Ingi fékk helling af fötum frá Árna Tuma frænda sínum :) Keyptum á hann snjógalla svo hann verði nú tilbúinn þegar snjórinn kemur :) Ætluðum svo að fá okkur í glas um kvöldið en það var beilað á okkur svo það varð ekkert úr því :(

Nú þarf maður víst að fara að undirbúa jólin...úff já! Aldrei þessu vant þá ætla ég og þarf að vera snemma í því ef ég ætla að komast yfir allt...er að búa til jólagjafir og svo þarf að láta prenta út myndir af guttanum og svona.

En annars þá bara sakna ég Reykjavíkur og hlakka alltaf til að fara suður næst.
Ásta Sólveig Hjálmars.
3 athugasemdir

Lítiđ um blogg...

23. október 2006 klukkan 19:11
Jæja...fyrirgefið elskurnar...eitthvað lítið um blogg á þessum bænum núna... Maður er svona að aðlagast nýjum aðstæðum og lítill tími fyrir nokkuð annað en að sinna litla kút og vinna. Erum líka dugleg að kíkja suður og hingað til hef ég notað hvert tækifæri til þess enda er ég að rotna í þessari íbúð sem við erum í gæfi nánast hvað sem er til að komast í almennilegt húsnæði!

En átakið gengur ekkert allt of vel þar sem ég hef nánast engan tíma...gekk vel í fyrstu og ég missti 1,6 kg á fyrstu 2 vikunum en svo var komið að því að breyta hegðun og það ar bara alls ekkert að virka því ég var að flytja á nýjan stað og er barasta ekki með neina vana hér og allar aðstæður eru nýjar. Ég er að kynnast nýju fólki og get því engu breytt. Ég ætti kannski að hringja í Ásu Birnu (eina af "gömlu" vinunum) og láta eins og hálfviti, þ.e. breyta hegðuninni...naaaa...held ekki. Hlífi þér við því Ása mín! Glottandi

En ég ætla að lesa þessa bók aftur þegar rútínan er orðin meiri og ég er búin að aðlagast breyttum aðstæðum...það að byrja að vinna eftir allan þennan tíma er bara meira en að segja það! Mér finnst eins og ég hafi ALDREI sofið í hvert skipti sem ég vakna á morgnana!

Annars er mest lítið að frétta. Fór suður þarsíðustu helgi og fór í innflutningspartý hjá Ásu minni. Það var rosa gaman en ég hefði átt að fara í vatnið um 2 því upp úr því var ég búin að fá mér einum, tveimur eða þremur of mikið!

Við fórum suður á laugardaginn og Hjálmar Ingi fékk helling af fötum frá Árna Tuma frænda sínum :) Keyptum á hann snjógalla svo hann verði nú tilbúinn þegar snjórinn kemur :) Ætluðum svo að fá okkur í glas um kvöldið en það var beilað á okkur svo það varð ekkert úr því :(

Nú þarf maður víst að fara að undirbúa jólin...úff já! Aldrei þessu vant þá ætla ég og þarf að vera snemma í því ef ég ætla að komast yfir allt...er að búa til jólagjafir og svo þarf að láta prenta út myndir af guttanum og svona.

En annars þá bara sakna ég Reykjavíkur og hlakka alltaf til að fara suður næst.
Ásta Sólveig Hjálmars.
Engin athugasemd

Dagur 7

03. október 2006 klukkan 02:08
Gerðu einhverjum góðverk, gerðu eitthvað sem gæti breytt lífi viðkomandi örlítið til batnaðar.

Fyrsta "góðverkið" mitt í dag var að fara með köttinn til dýralæknis. Hann er eitthvað meiddur greyið. Hvæsir ef maður kemur nálægt afturfætinum og reynir að bíta mann eða klóra. Spurning hvort hann hafi lent í slagsmálum eða hvað. Var voða dugleg að þvo þvott og laga til og svona annars. Við Hjálmar Ingi fórum svo í heimsókn til ömmu á spítalann. 

Eftir það fórum við upp á Dvaló og ég tók með mér bleikan hjartapúða sem ég átti. Gaf hann konu sem á ekki marga að og hún var svo glöð. Fannst líka ægilega gaman að Hjálmari Inga og hélt á honum í smá stund. Brosandi Hittum svo nokkra af heimilisfólkinu og allir voru voða skotnir í litla snúðinum mínum Hlæjandi ég er ekki frá því að mér líði hreint frábærlega yfir góðverkinu mínu...hún var svo svakalega ánægð!

En það er víst eins gott að fara að klára aukaverkefnin...ætla að reyna að teikna eitthvað í kvöld! HAHA...nú hlær stóra systir þegar hún sér þetta....jahh...og ekki bara hún! Ullandi
Ásta Sólveig Hjálmars.
6 athugasemdir